Um okkur

Online Audio Guide var opnað sumarið 2008 með fjórum íslenskum söfnum. Tæknin sem við höfum þróað gerir söfnum kleift að dreifa stafrænum hljóðleiðsögnum á tæki sem gestir þeirra eiga sjálfir, en það lækkar kostnað sem fylgir kaupum á dýrum handtækjum.

Framtíðarsýn okkar er alþjóðlegt samfélag safna og sögufrægra staða sem býður gestum sínum upp á hljóðleiðsagnir á ódýran hátt. Gestirnir nálgast efnið á síðunni www.onlineaudioguide.com eða á staðnum í gegnum frumlega útstöð sem við höfum þróað til að dreifa efninu.

Við höfum mikinn áhuga á að ræða við forsvarsmenn safna, setra og sýninga um samstarf. Því hvetjum við alla aðila sem starfa við miðlun á sögu og menningu að setja sig í samband við okkur.


Netfang: onlineaudioguide@onlineaudioguide.com

Online Audio Guide is provided by

Seiður ehf
Austurbrún 35
104 Reykjavík
kt. 500903-3170

PDF-skrá Download PDF brochure

 

Innskráning Starfsfólk safna sem hafa nú þegar aðgang getur skráð sig inn héðan.